Valmynd

Heim

Um ...

Próftafla


Flokkar:

"Greinar"

Almennt

Daglegt amstur

Flipp

n0rd

Nöldur

Skóli

Tungumál


Status:

borda...
(síðast uppfært: 01/30/2009 11:16:13 PM)

Hlekkir


Nytsamlegt:

Google

GMail


Áhugavert:

Sverrir Páll [svp]


Vandamenn:

Dísa litla systir mín

Helgi Vilberg

Birgir Þór

2009-07-13

"Allt eða ekkert" og meiri tölfræði

Þingmenn voru í Kastljósi í kvöld m.a. að ræða hvort breyta ætti stjórnarskrá svo hægt væri að halda bindandi kosningar. Sér í lagi vegna hugsanlegra kosninga um aðild að Evrópusambandinu (ESB).

Sumir voru á því að bindandi kosningar væri eina leiðin og aðrir voru akkúrat á hinum pólnum.

Hins vegar er hægt að gera annað, en það mætti kalla blandaða kosningu. Þannig gæti t.d. þingið haft 50% um málið að segja og þjóðin myndi kjósa um hin 50%. Mætti segja að þjóðin hefði þá 50% "bindi-vægi". Þessi möguleiki var ekkert ræddur og verður það varla. En flestir þingmenn hljóta að sætta sig við eitthvert vægi, hvort sem það er nær 0% eða 100%. En ég myndi miklu frekar vilja sjá þetta líkan en að rífast endalaust um "allt eða ekkert"-leiðina.

Þessar pælingar leiðir okkur nú að tölfræðinni. Sumir þingmenn virðast ætla að fylgja samvisku sinni til dauða og kjósa jafnvel gegnt vilja þjóðarinnar sem gæti hnekkt niðurstöðu óbindandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Aðrir þingmenn segjast vera nokkuð vissir um að fylgja vilja þjóðarinnar eftir og segjast ætla að kjósa eftir niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslu.

Í umræðum í sjónvarpi hlaupa menn oft hratt yfir og setja fram staðhæfingar sem eru ónákvæmar, tölfræðilega séð. Látum sem svo að helmingur þingmanna (að handahófi) sé á móti inngöngu í ESB og að helmingur þingmanna (einnig að handahófi) muni fylgja eigin sannfæringu. Þá munu 50% x 50% = 25% þingmanna kjósa með ESB skv. eigin trú, og 25% þingmanna kjósa móti ESB skv. eigin trú. Hinir munu fylgja þjóðinni og hefur þjóðin þannig í raun 50% bindi-vægi á við þingið. Samt bara í plati.

Ef þjóðin hefði hinsvegar raunverulegt 50% bindi-vægi á lokaniðurstöðuna og þingmenn myndu áfram kjósa eins og ég sagði að ofan, þá myndi þjóðin ráða um 75% atkvæða og 25% væru "þrjóskuatkvæði" eigin-sannfæringa-þingmanna. Þetta gerði þinginu erfiðara fyrir um að fara gagngert móti vilja þjóðarinnar án þess þó að kosningar væru algerlega bindandi.

Ég, persónulega, myndi vel sætta mig við það. Þetta er náttúrulega mjög gróft líkan og má hnika til bæði bindi-væginu sem þjóðin væri með (mér finnst t.a.m. hvorki 0% né 100% vera gáfulegir valmöguleikar) og einnig mætti áætla nákvæmar hversu margir "eiginsannfæringaþingmenn" eru og hversu margir þingmenn eru með/á móti ESB.

Svo tók fulltrúi Sjálfstæðisflokks dæmi um að ef þjóðarniðurstaðan væri 49.9% móti 50.1% þá hefði þingið í raun allt vald til þess að gagna þvert á við vilja þjóðarinnar. Eins og það væri hræðilega illa gert! En... þingið væri þá að ganga á móti vilja 0.1% fólks í landinu. Ríflega 300 manns af 300.000. Í fyrsta lagi - ef það verður svona tæpt á mununum, þá hljóta að vera haldnar aðrar kosningar eftir meiri fræðslu/áróður. Annars fyndist mér bara að þingið ætti að útkljá þetta þegar þjóðin er svo klofin.

Nei, þetta eru nú bara léttar pælingar sem skipta minna máli. Annars vil ég fara í tvöfalda atkvæðagreiðslu. Fyrri má vera eins óbindandi og vera vill. En í seinni myndi ég vilja hafa smá bindi-vægi. Bottom-line var bara að fólk horfir oft bara á annaðhvort-eða og rífst svo um það. Í fjöööldamörgum tilfellum innan eðlisfræðinnar er raunin sú að há- eða lággildi (t.d. ávöxtunar eða skulda) er að finna milli tveggja endapunkta, og vandamálið snýst gríðarlega oft um að finna hvar útgildið liggur.

Flokkar: "Greinar" | Nöldur
Rotið þann 2009-07-13 kl. 21:17:26 af þeim sem heitir Tómas Árni

!
Reit Mamma kl. 00:32:37 þann 2009-07-18.
Mikið er ég glöð að einhver nennir að blogga svona um hásumar, og það á gáfulegu nótunum.
Reit Tinna kl. 00:16:55 þann 2009-07-26.
jú.. einhver verður að skrifa leiðinlegu bloggin :)
Reit Síðubrjósthaldari kl. 22:30:22 þann 2009-07-28.

Bættu við athugasemd:

Höfundur:

Athugasemd:

Óþokkasía Gylfa (TM). Sláðu inn "gylfi" hér að neðan: