Valmynd

Heim

Um ...

Próftafla


Flokkar:

"Greinar"

Almennt

Daglegt amstur

Flipp

n0rd

Nöldur

Skóli

Tungumál


Status:

borda...
(síðast uppfært: 01/30/2009 11:16:13 PM)

Hlekkir


Nytsamlegt:

Google

GMail


Áhugavert:

Sverrir Páll [svp]


Vandamenn:

Dísa litla systir mín

Helgi Vilberg

Birgir Þór

2010-01-20

Inferometry

Var að lesa um tvíeðli atóma sbr. bylgjur gagnvart eindum (þess konar tvíeðli þekkist betur fyrir ljós og eindir af "skammta"-stærð sbr. þessa grein og tilraun Youngs). Fór að spá hvernig það væri nú að gera tilraun á tvíeðli fólks (og ég er ekki að tala um sálfræðikvilla). Þyrfti þá ekki að smíða risastóra útgáfu á tilraun Youngs, nú eða risastóran "inferometer"...

Ég held samt að niðurstöðurnar verði frekar sálfræðilegar heldur en eðlisfræðilegar... Eða hvað heldur þú? Gæti eflaust fengið eðlisfræðingana hér í HÍ til að taka þátt (nema þeir vita líklega hver niðurstaðan ætti að verða - frekar kannski tala við fjöldameiri deild?)

EDIT (20. janúar 2010 - 17:23:00): ÓNEI! Það hefur einhver þegar framkvæmt þetta :( Það var Raoul Nakhmanson sem setti fram skýrslu árið 2004 (sjá hér og hér.). Niðurstaðan er gróflega sú að konur sýna fram á umrætt tvíeðli, en það fer minna fyrir því hjá körlum.

Þetta er reyndar ágætt. Gæti endurtekið rannsóknina og séð hvort þjóðerni hefur eitthvað með málið að gera...

Flokkar: n0rd
Rotið þann 2010-01-20 kl. 17:03:40 af þeim sem heitir Tómas Árni

Mjög áhugavert! Þá sérstaklega munurinn milli kynjanna.

Hvers vegna heldur þú að niðurstöðurnar yrðu frekar sálfræðilegar?

Reit Andrea kl. 13:31:17 þann 2010-01-22.
Ég held að niðurstöðurnar væru sálfræðilegar ef konurnar fái að bíða við vegginn þar til allir hafa gengið í gegn - frekar en að senda þær eina og eina í gegn í einu. Þá sjá þær "systur" sínar hópast saman og velja fýsilegasta hópinn, sem samt er nógu nálægt. Þannig væri þetta "sálfræðilegra" eða "félagslegra".

Hinsvegar geta smágerðar agnir (sem lúta að miklu leyti lögmálum skammtafræði) haft áhrif á hvor aðra, þótt ein komi "langt" á eftir hinni. Þar er hinsvegar um eitthvað annað en sálfræði að ræða, heldur einhverskonar hrif gegnum tíma-rúmið eða kannski einhver af æðri rúmum strengjafræði. Hef ekki lært nógu mikið til að skýra þetta nánar - því miður

Reit Síðuhaldari kl. 02:50:41 þann 2010-01-23.
Ég ætlaði að koma með eitthvað skemmtilegt komment en það er ekki hægt.
Reit Helgi Þór kl. 00:02:39 þann 2010-01-25.
Þetta var t.d. skemmtilegt komment hjá þér..
Reit Síðuhaldari kl. 00:33:20 þann 2010-01-25.

Bættu við athugasemd:

Höfundur:

Athugasemd:

Óþokkasía Gylfa (TM). Sláðu inn "gylfi" hér að neðan: