Valmynd

Heim

Um ...

Próftafla


Flokkar:

"Greinar"

Almennt

Daglegt amstur

Flipp

n0rd

Nöldur

Skóli

Tungumál


Status:

borda...
(síðast uppfært: 01/30/2009 11:16:13 PM)

Hlekkir


Nytsamlegt:

Google

GMail


Áhugavert:

Sverrir Páll [svp]


Vandamenn:

Dísa litla systir mín

Helgi Vilberg

Birgir Þór

2009-04-28
Ætli það sé ekki af mannúðarástæðum sem talað er um "Schrödinger's Cat Thought Experiment" frekar en "Schrödinger's Cat Experiment"...
Flokkar: Daglegt amstur, Almennt, n0rd
Rotið þann 2009-04-28 kl. 15:33:42 af þeim sem heitir Tómas Árni
2009-03-21

Eigum við að tala eitthvað um það?

Hvað veðrið er gott...

Eru ekki allir í góðu skapi?!

Flokkar: Daglegt amstur, Flipp, Almennt
Rotið þann 2009-03-21 kl. 10:24:37 af þeim sem heitir Tómas Árni
2009-02-25

Fékk eitthvað komment á síðustu færslu er við kom fjölda og tegunda athugasemdara (þeir sem skrifa athugasemdir).

Iss piss, segi ég nú bara. Það er nefninlega einmitt ekki tilfellið að ég sé að há einhverja baráttu um vinsældir. Fjarri því, þá er vefill þessi ætlaður fáeinum nánum aðilum sem gætu haft gaman að því að heyra við hvað ég er að fást (þýs. Faust).

Það er reyndar talsvert um það í dag, að allir verði að vera inn, á einhvern hátt. Allir verði að eiga blogg sem vert væri að lesa, skemmtilegan Facebook prófíl, nú eða spila í einhverri hálf-leiðinlegri popphljómsveit. Ég veit ekki með ykkur, en ég sé litla von fyrir Björtustu Vonina frá Ísl. Tónlistarverðlaununum. Ekki að þeir séu lélegir. Þeir eru bara ekki góðir. Satt best að segja, þá finnst mér skemmtilegra að hlusta á hamarshögg. En jæja.. þessi færsla átti nú ekki að snúast um hinn lélega poppkúltúr á íslandi. Hvaða vit er nú annars í að hafa rosa tónlistarverðlaun í mörgum flokkum fyrir land sem er svo lítið sem okkar? Þar sem tilnefndir eru 5 af kannski, hvað, 5 sem mögulega koma til greina yfirhöfuð? Þar með getur varla talist merkilegt að fá tilnefningu þar sem samkeppnin er engin. OK, vá.. ég er virkilega bara farinn að nöldra um tónlist hérna...

Reyndar skrifa ég öðru hverju hér inn um einhver málefni er skipta mig einhverju máli - sbr. hringtorga- eða pizzufærslan. Þá myndi ég vitanlega vilja koma minni skoðun á framfæri hjá alþjóð og helst víðar. En, tjah, það má þá alveg spyrja sig hvort vefillinn sé rétt form til að reyna að breyta heiminum. Sumir reyna að nota blogg til þess. (Ég er btw. að að gera greinarmun á bloggi og vefli).

Ef maður vill breyta einhverju í heiminum - heldur fólk virkilega að ein besta leiðin sé að skrifa um það stutta (eða langa) færslu á persónulega vefdagbók? Ég held nú ekki. Best væri líkast til að fara í stærri fjölmiðla, senda bréf (eða tölvupóts) á viðeigandi aðila, eða fara á stjá í eigin persónu (í hvers perónu á maður annars að fara?) og ræða málin feis tú feis.

Well.. ég ætlaði nú ekkert að vera að nöldra. Athugasemdin - sem kom frá Tinnu Ó. - var vitanlega meira og minna í léttu glensi fram sett (eins gott Tinna, annars verð ég bjálau). Mest megnis er ég bara eitthvað að hanga hérna, af því ég nenni ekki að fara inn í rúm. Reyndar bíður þar mín ein skemmtileg sem ég ætla að eyða síðustu mínútum kvöldsins með. Það gæti nú orðið skemmtilegt.



Sú sem bíður er nefninlega bók og er eftir A.C.Doyle nokkurn...

Flokkar: Daglegt amstur, Flipp, Almennt, "Greinar", Nöldur
Rotið þann 2009-02-25 kl. 00:36:08 af þeim sem heitir Tómas Árni
2008-02-23

Það er svo undarlegt hvernig sumt fólk bregst við að hringja í skakkt símanúmer. Ég lendi í því öðru hverju að það er hringt í mig og viðbrögðin eru misjöfn. Sumir skella á eftir að ég hef svarað (ég svara með nafni í símann), aðrir setja "úps, vitlaust númer" og skella svo á, en aðrir biðjast forláts og kveðja svo. Það er vitanlega almennilegasta kveðjan.

Núna síðast hringdi ungur drengur - á að gizka 10 ára - og brást hann vel við, afsakaði og kvaddi svo. Hinsvegar hefur fullorðið fólk hrokkið við og skellt á mig. Svona fer kannski eftir aldrinum..

Ég hinsvegar svara kveðjunni oftast ómeðvitað með orðunum: "það var lítið". Það er lika skrýtið.. well.. aftur að taka til!

Flokkar: Daglegt amstur, Almennt
Rotið þann 2008-02-23 kl. 17:38:20 af þeim sem heitir Tómas Árni
2007-12-09

Lítið að frétta. Mikið að lesa. Eftir því sem nær dregur prófum vill maður gera allt í heiminum annað en að lesa. Það held ég að hljóti að eiga við um fleiri en mig. Það er amk. auðveldara að fara og sópa gólfin en að setjast við bækur...

<nörd>Annars var ég í útgáfupartíi Trinity á föstudaginn var. Það var hin merkilegasta samkoma, en ég skemmti mér hið besta. Þemað var englar og djöflar. Hélt það væri grín, en svo var ekki. En það voru allir léttir í bragði og ekki var minnst á Boot.ini. Tjah... Ekki mikið.</nörd>

(En jólasnjórinn á síðunni er hrikalegur right?)

Flokkar: Daglegt amstur, Almennt, Skóli
Rotið þann 2007-12-09 kl. 11:21:31 af þeim sem heitir Tómas Árni
2007-11-26
Frelsarinn var hin áhugaverðasta sýning. Ekkert tal og látbragð í fyrirrúmi. Svo var sviðsmyndin skemmtileg, en sviðið breytti halla sínum hér og þar í verkinu. Fór mest í 90° og hugsið ykkur að leika á lóðréttu sviði...

Anyway.. ég hafði sum sé rangt fyrir mér varðandi sjóhitann. Hann fer vitanlega lægra en 3,8°C hér við strendur Rvk og nágrennis og var hann í 2,5°C síðast er við fórum. Sleppum því í dag vegna anna, en ætlum að bæta það upp með betra sundi á miðvikudaginn.

Prófin fara svo að nálgast og af því tilefni henti ég upp prófatöflunni minni hér á síðuna. Hana má nálgast gegnum hlekk á valmyndinni, eða með því að smella hér. Þetta er vitanlega aðallega fyrir ömmu og afa og aðra sem ætla að bjóða mér mat næstu vikur :)

Sem minnir mig á að ég þarf að hlaupa út í mat!

Flokkar: Daglegt amstur, Flipp, Almennt, Skóli
Rotið þann 2007-11-26 kl. 17:37:41 af þeim sem heitir Tómas Árni
2007-11-20
Ég er ekki frá því að þetta sé sérlega heilsusamlegt aktivitet, sjósund. Hressir bætir herðir og kætir. Ég kann þeim Bigga og Hauk miklar þakkir fyrir að draga mig í þetta hrikalega sport. Tvö skipti búin. Fyrst við 6-7°C og nú síðast var sjórinn 3,8°C. Held þetta vonandi út amk. tvö skipti í viðbót. Það verður amk. varla kaldara úr þessu... Hvet fólk til að tékka á þessu. Mánudaga og miðvikudaga kl. 17:00 og miðvikudaga um hádegið líka held ég...

Af öðru er það að frétta að mér sýnist sem ég taki flugið heim um jólin þann 20. desember. Gaman að því!

Enginn sem vill skella sér á Frelsarann næstkomandi fimmtudagskvöld? Tékkið á þessu vídeói.

Flokkar: Daglegt amstur, Flipp, Almennt
Rotið þann 2007-11-20 kl. 17:07:29 af þeim sem heitir Tómas Árni
2007-11-19
Góða kvöldið

Mér datt svona í hug að eiga litla vefdagbók til þess að rita niður hugrenningar mínar ef mér skyldi detta eitthvað sniðugt í hug.

En þá er ekki fleira í bili, veriði sæl.

Flokkar: Daglegt amstur, Almennt
Rotið þann 2007-11-19 kl. 21:20:01 af þeim sem heitir Tómas Árni