Habbla ha...
Tekið af www.getmilked.com.
Rotið þann 2009-11-05 kl. 01:03:29 af þeim sem heitir Tómas Árni
... úr Brave New World eftir Aldous Huxley. Kemur frá (að því er virðist) Breskum einstaklingi:
Iceland was just a threat. A most stimulating and life-giving threat.þegar honum var hótað að vera sendur þangað ef hann hagaði sér ekki.
Rotið þann 2009-08-01 kl. 20:12:37 af þeim sem heitir Tómas Árni
Já lesendur góðir/ur. Skólaárinu 2008-2009 er nú lokið fyrir mér. Það fer þó fjarri að skólaárinu sé ofissjallý lokið. Vorútskrift er enn eftir, en ég mun að þessu sinni taka þátt í henni og taka að mér hlutverk nýúðskrifaðs BS hugbúnaðarverkfræðings.
YAY!
Svo einhverjum af ykkur lesendum er boðið í partí af því tilefni. Líklega öllum... en ekki fólki sem kom hér inn af handahófi eða þekkir mig lítið sem ekkert. Reyndar væri örugglega gaman að fá einn eða tvo af handahófi...
Anyway! Ég vildi bara skála fyrir því! Aleinn reyndar... en fæ kannski annað glas til að gera hljóðið...
Yfir og út!
Rotið þann 2009-06-11 kl. 17:28:05 af þeim sem heitir Tómas Árni
Disclaimer: Ég veit nákvæmlega ekkert um einkavæðingu né heldur álþjóðaviðskipti. Svo þetta eru nú bara léttar vangaveltur.
Hvað eru lönd annað en einkavædd risafyrirtæki sem berjast um viðskipti og auðlindir? Ég er nú bara að spá í þessu af því að einkavæðing hefur verið mikið í umræðunni undanfarið, einnig í tengslum við kvótakerfið.
Hvernig er jöfnuður milli landa? Jú, sum eru fátæk, önnur rík og öll reyna þau að hagnast sem mest á hinum og ná sem bestri stöðu og verða sterkust. Það sem gerist á endanum er líklega það að eitt land tekur yfir og hin þjóna því. Það er amk. mín spá (reyndar gæti þetta vel orðið einhvers konar bandalag eða sambandsríki).
Hvað er þá Evrópusambandið, eða Sameinuðu Þjóðirnar, í þessu samhengi? Einhvers konar samningur milli allra landa um að allir séu aðeins jafnari? Einhvers konar öryggi, eða trygging um að enginn rísi ofar hinum og fari offari? Það held ég nú.
Þegar aflaheimildir voru einkavæddar, þá hefði átt að fylgjast með því betur, líkt og sameinuðu þjóðirnar fylgjast með því að þjóðir séu ekki að ofveiða. Well.. ég reyndar veit ekkert um hvort þær fylgjast með því, en ég ímynda mér að þær standi fyrir svipuðu átaki víðsvegar um heiminn.
Einkavæðing er nú ekki ill með öllu. T.d. á einkalíf að vera einkavætt. En ég hugsa að til lengri tíma litið, þá ættu mörkin að vera dregin einhvers staðar rétt fyrir utan eða við einkalífið. Annars eykst bara mengun og ofurneysla í endalausu kapphlaupi við að vera fremstir.
Vissulega gæti það hægt á framþróun. En erum við ekki orðin þokkalega tæknivædd? Við komumst alveg til Mars og svona. Nákvæmlega enginn tilgangur til þess að fara lengra, nema ef við gætum búið til tæki sem gæti sveigt rúmið svo við gætum farið á einhverja áhugaverðari staði en næsta nágrenni. Líkurnar á að eitthvað skemmtilegt finnist á innan við tug ljósára fjarlægð eru stjarnfræðilega litlar. Ef við ætlum að gera eitthvað meira en að leika okkur í töluleikjum og rækta korn, þá er eina vitið að geta ferðast eitthvert ótúúúlega langt í burtu. Svo við þurfum í raun ekki miklar meiri tækniframfarir. Fínt að drolla bara að finna hreinni orkugjafa og rækta korn. Því að hugsanlega verður það aldei mögulegt að komast úr þessu sólkerfi okkar, án þess að kveðja það fyrir fullt og allt og hefja þúsund ára ferðalag um geiminn í leit að annari reikistjörnu sem væri hægt að lifa á.
Rotið þann 2009-05-31 kl. 11:09:27 af þeim sem heitir Tómas Árni
Efni síðustu færsla gerði hana varla þess verða að vera lengur hér efst á vefli. Vildi því koma fáeinum orðum á framfæri
Nitwit! Blubber! Oddment! Tweak!
Rotið þann 2009-04-04 kl. 20:21:40 af þeim sem heitir Tómas Árni
Eigum við að tala eitthvað um það?
Hvað veðrið er gott...
Eru ekki allir í góðu skapi?!
Rotið þann 2009-03-21 kl. 10:24:37 af þeim sem heitir Tómas Árni
Hjúkk! Ég held mér hafi tekist að endurskrifa PHP-vakningarkóðann minn seinnipartinn í nótt (í draumi sko). Mig minnir að ég og Biggi hefðum verið að fara yfir kóðann minn og lagað ýmislegt.
Síðustu útgáfu þar á undan skrifaði ég (minnir mig) í svefni fyrir eitthvað eins og 2 mánuðum síðan, en ég man samt hvað ég var alltaf óánægður með stóra hluta í kerfinu...
Er ekki frá því að eftir breytingarnar eigi ég auðveldara með að vakna.
En kannski er dagurinn í dag bara frávik...
Rotið þann 2009-03-14 kl. 08:55:04 af þeim sem heitir Tómas Árni
Fékk eitthvað komment á síðustu færslu er við kom fjölda og tegunda athugasemdara (þeir sem skrifa athugasemdir).
Iss piss, segi ég nú bara. Það er nefninlega einmitt ekki tilfellið að ég sé að há einhverja baráttu um vinsældir. Fjarri því, þá er vefill þessi ætlaður fáeinum nánum aðilum sem gætu haft gaman að því að heyra við hvað ég er að fást (þýs. Faust).
Það er reyndar talsvert um það í dag, að allir verði að vera inn, á einhvern hátt. Allir verði að eiga blogg sem vert væri að lesa, skemmtilegan Facebook prófíl, nú eða spila í einhverri hálf-leiðinlegri popphljómsveit. Ég veit ekki með ykkur, en ég sé litla von fyrir Björtustu Vonina frá Ísl. Tónlistarverðlaununum. Ekki að þeir séu lélegir. Þeir eru bara ekki góðir. Satt best að segja, þá finnst mér skemmtilegra að hlusta á hamarshögg. En jæja.. þessi færsla átti nú ekki að snúast um hinn lélega poppkúltúr á íslandi. Hvaða vit er nú annars í að hafa rosa tónlistarverðlaun í mörgum flokkum fyrir land sem er svo lítið sem okkar? Þar sem tilnefndir eru 5 af kannski, hvað, 5 sem mögulega koma til greina yfirhöfuð? Þar með getur varla talist merkilegt að fá tilnefningu þar sem samkeppnin er engin. OK, vá.. ég er virkilega bara farinn að nöldra um tónlist hérna...
Reyndar skrifa ég öðru hverju hér inn um einhver málefni er skipta mig einhverju máli - sbr. hringtorga- eða pizzufærslan. Þá myndi ég vitanlega vilja koma minni skoðun á framfæri hjá alþjóð og helst víðar. En, tjah, það má þá alveg spyrja sig hvort vefillinn sé rétt form til að reyna að breyta heiminum. Sumir reyna að nota blogg til þess. (Ég er btw. að að gera greinarmun á bloggi og vefli).
Ef maður vill breyta einhverju í heiminum - heldur fólk virkilega að ein besta leiðin sé að skrifa um það stutta (eða langa) færslu á persónulega vefdagbók? Ég held nú ekki. Best væri líkast til að fara í stærri fjölmiðla, senda bréf (eða tölvupóts) á viðeigandi aðila, eða fara á stjá í eigin persónu (í hvers perónu á maður annars að fara?) og ræða málin feis tú feis.
Well.. ég ætlaði nú ekkert að vera að nöldra. Athugasemdin - sem kom frá Tinnu Ó. - var vitanlega meira og minna í léttu glensi fram sett (eins gott Tinna, annars verð ég bjálau). Mest megnis er ég bara eitthvað að hanga hérna, af því ég nenni ekki að fara inn í rúm. Reyndar bíður þar mín ein skemmtileg sem ég ætla að eyða síðustu mínútum kvöldsins með. Það gæti nú orðið skemmtilegt.
Sú sem bíður er nefninlega bók og er eftir A.C.Doyle nokkurn...
Rotið þann 2009-02-25 kl. 00:36:08 af þeim sem heitir Tómas Árni
"Með hverju barni hefur kæruleysið vaxið með lógarithmískum hraða"
HAHAHAHAHA!
Þakka Helga f. ábendingunaRotið þann 2008-12-01 kl. 23:18:59 af þeim sem heitir Tómas Árni
Rotið þann 2008-11-27 kl. 23:28:28 af þeim sem heitir Tómas Árni