Til eru reykvískir námsmenn sem fá ekki pláss á görðunum, og neyðast til að fara til keflavíkur í stúdentagarða. Til þess að fá húsaleigubætur hafa þeir margir hverjir flutt lögheimilið þangað. Þá missa þeir strætókortin.
Reyndar heyrði ég síðan að nemendur gætu sótt um húsaleigubætur hjá eigin sveitarfélagi þótt þeir byggju annarsstaðar - einhverskonar undanþága.
En það breytir því þó ekki að ég þyrfti að eyða um 5% af námsláninu mínu í strætókort. Well.. það er nú svosem ekki svo mikið.
Rotið þann 2008-08-28 kl. 11:49:33 af þeim sem heitir Tómas Árni
Það er útlit fyrir að ég fái ekki ókeypis í strætó þetta árið. Ástæðan er sú að sveitarfélagið mitt ákvað að taka ekki þátt í Nemendakortum Strætó BS.
Mér finnst það fúlt, sér í lagi þar sem ég fæ ókeypis í strætó á Ísafirði. En það er svosem skiljanlegt að Ísafjarðarbær sé ekki að borga strætóferðir einhverra nema í Reykjavík - nema að ég borga mína skatta vestur á land, þótt ég sé staðsettur í Rvk. Því finnst mér ég eigi alveg rétt á að fá eittvað til baka, þar sem ég nota lítið almenningsþjónustur f. vestan.
En svo gæti ég náttla bara flutt lögheimilið... En ég vil það nú helst ekki strax. Ég stefni nefninlega ekki á að búa í Reykjavík til framtíðar.
Af hverju fékk ég annars frítt í strætó í fyrra?
Rotið þann 2008-08-27 kl. 12:53:23 af þeim sem heitir Tómas Árni
Þetta með vörubílstjórana er svo heimskulegt að ég ætla ekki einusinni að tala meira um það hér.
En nú ganga prófin í garð með öllu tilheyrandi. Því er ekki fleira í fréttum næstu daga. Próflok 15. maí!
Rotið þann 2008-04-24 kl. 21:04:10 af þeim sem heitir Tómas Árni
Af hverju tökum við alltaf upp eftirnafn fólks þegar við tölum ensku? Við gerum það jafnt í tal- og ritmáli, hér á landi eða í útlöndum og hvort sem um útlending eða íslending er að ræða.
Ekki taka aðrar þjóðir upp okkar siði og nota fornöfn.
Sumir myndu segja þetta væri bundið málinu, þannig að þegar enska er töluð, þá skyldi maður nota eftirnafn fyrir sérnöfn. Það er svolítið kjánalegt finnst mér.
Af öðru er það að segja að síðasta prófið mitt er á morgun, Safneðlisfræði 1, en að því loknu ætla ég að taka heljarstökk afturábak.
Þann 20. desember næstkomandi mun ég svo fljúga heim í faðm fjalla blárra.. yay!
(og á enn eftir að búa til nördafilterinn... kemur kannski um jólin)
Rotið þann 2007-12-17 kl. 17:18:25 af þeim sem heitir Tómas Árni
Lítið að frétta. Mikið að lesa. Eftir því sem nær dregur prófum vill maður gera allt í heiminum annað en að lesa. Það held ég að hljóti að eiga við um fleiri en mig. Það er amk. auðveldara að fara og sópa gólfin en að setjast við bækur...
<nörd>Annars var ég í útgáfupartíi Trinity á föstudaginn var. Það var hin merkilegasta samkoma, en ég skemmti mér hið besta. Þemað var englar og djöflar. Hélt það væri grín, en svo var ekki. En það voru allir léttir í bragði og ekki var minnst á Boot.ini. Tjah... Ekki mikið.</nörd>
(En jólasnjórinn á síðunni er hrikalegur right?)
Rotið þann 2007-12-09 kl. 11:21:31 af þeim sem heitir Tómas Árni
Anyway.. ég hafði sum sé rangt fyrir mér varðandi sjóhitann. Hann fer vitanlega lægra en 3,8°C hér við strendur Rvk og nágrennis og var hann í 2,5°C síðast er við fórum. Sleppum því í dag vegna anna, en ætlum að bæta það upp með betra sundi á miðvikudaginn.
Prófin fara svo að nálgast og af því tilefni henti ég upp prófatöflunni minni hér á síðuna. Hana má nálgast gegnum hlekk á valmyndinni, eða með því að smella hér. Þetta er vitanlega aðallega fyrir ömmu og afa og aðra sem ætla að bjóða mér mat næstu vikur :)
Sem minnir mig á að ég þarf að hlaupa út í mat!
Rotið þann 2007-11-26 kl. 17:37:41 af þeim sem heitir Tómas Árni