Eftirfarandi reglu hef ég eftir staðfestum réttum óhrekjanlegum heimildum (sjá blogg Benna):
Ef þú ert að fara á þorrblót á laugardegi, þá mátt þú segja: “Ég er að fara á þorrablót á helginni”
Ef þú ert að fara á sama þorrablótið föstudag, laugardag og sunnudag, þá getur þú sagt: “Ég er að fara á þorrablót um helgina”.
og hana nú!
Rotið þann 2008-02-19 kl. 22:50:21 af þeim sem heitir Tómas Árni
Af hverju tökum við alltaf upp eftirnafn fólks þegar við tölum ensku? Við gerum það jafnt í tal- og ritmáli, hér á landi eða í útlöndum og hvort sem um útlending eða íslending er að ræða.
Ekki taka aðrar þjóðir upp okkar siði og nota fornöfn.
Sumir myndu segja þetta væri bundið málinu, þannig að þegar enska er töluð, þá skyldi maður nota eftirnafn fyrir sérnöfn. Það er svolítið kjánalegt finnst mér.
Af öðru er það að segja að síðasta prófið mitt er á morgun, Safneðlisfræði 1, en að því loknu ætla ég að taka heljarstökk afturábak.
Þann 20. desember næstkomandi mun ég svo fljúga heim í faðm fjalla blárra.. yay!
(og á enn eftir að búa til nördafilterinn... kemur kannski um jólin)
Rotið þann 2007-12-17 kl. 17:18:25 af þeim sem heitir Tómas Árni