Valmynd

Heim

Um ...

Próftafla


Flokkar:

"Greinar"

Almennt

Daglegt amstur

Flipp

n0rd

Nöldur

Skóli

Tungumál


Status:

borda...
(síðast uppfært: 01/30/2009 11:16:13 PM)

Hlekkir


Nytsamlegt:

Google

GMail


Áhugavert:

Sverrir Páll [svp]


Vandamenn:

Dísa litla systir mín

Helgi Vilberg

Birgir Þór

2009-10-23

...

Flokkar: Almennt, Nöldur
Rotið þann 2009-10-23 kl. 03:03:38 af þeim sem heitir Tómas Árni
2009-07-13

Þingmenn voru í Kastljósi í kvöld m.a. að ræða hvort breyta ætti stjórnarskrá svo hægt væri að halda bindandi kosningar. Sér í lagi vegna hugsanlegra kosninga um aðild að Evrópusambandinu (ESB).

Sumir voru á því að bindandi kosningar væri eina leiðin og aðrir voru akkúrat á hinum pólnum.

Hins vegar er hægt að gera annað, en það mætti kalla blandaða kosningu. Þannig gæti t.d. þingið haft 50% um málið að segja og þjóðin myndi kjósa um hin 50%. Mætti segja að þjóðin hefði þá 50% "bindi-vægi". Þessi möguleiki var ekkert ræddur og verður það varla. En flestir þingmenn hljóta að sætta sig við eitthvert vægi, hvort sem það er nær 0% eða 100%. En ég myndi miklu frekar vilja sjá þetta líkan en að rífast endalaust um "allt eða ekkert"-leiðina.

Þessar pælingar leiðir okkur nú að tölfræðinni. Sumir þingmenn virðast ætla að fylgja samvisku sinni til dauða og kjósa jafnvel gegnt vilja þjóðarinnar sem gæti hnekkt niðurstöðu óbindandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Aðrir þingmenn segjast vera nokkuð vissir um að fylgja vilja þjóðarinnar eftir og segjast ætla að kjósa eftir niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslu.

Í umræðum í sjónvarpi hlaupa menn oft hratt yfir og setja fram staðhæfingar sem eru ónákvæmar, tölfræðilega séð. Látum sem svo að helmingur þingmanna (að handahófi) sé á móti inngöngu í ESB og að helmingur þingmanna (einnig að handahófi) muni fylgja eigin sannfæringu. Þá munu 50% x 50% = 25% þingmanna kjósa með ESB skv. eigin trú, og 25% þingmanna kjósa móti ESB skv. eigin trú. Hinir munu fylgja þjóðinni og hefur þjóðin þannig í raun 50% bindi-vægi á við þingið. Samt bara í plati.

Ef þjóðin hefði hinsvegar raunverulegt 50% bindi-vægi á lokaniðurstöðuna og þingmenn myndu áfram kjósa eins og ég sagði að ofan, þá myndi þjóðin ráða um 75% atkvæða og 25% væru "þrjóskuatkvæði" eigin-sannfæringa-þingmanna. Þetta gerði þinginu erfiðara fyrir um að fara gagngert móti vilja þjóðarinnar án þess þó að kosningar væru algerlega bindandi.

Ég, persónulega, myndi vel sætta mig við það. Þetta er náttúrulega mjög gróft líkan og má hnika til bæði bindi-væginu sem þjóðin væri með (mér finnst t.a.m. hvorki 0% né 100% vera gáfulegir valmöguleikar) og einnig mætti áætla nákvæmar hversu margir "eiginsannfæringaþingmenn" eru og hversu margir þingmenn eru með/á móti ESB.

Svo tók fulltrúi Sjálfstæðisflokks dæmi um að ef þjóðarniðurstaðan væri 49.9% móti 50.1% þá hefði þingið í raun allt vald til þess að gagna þvert á við vilja þjóðarinnar. Eins og það væri hræðilega illa gert! En... þingið væri þá að ganga á móti vilja 0.1% fólks í landinu. Ríflega 300 manns af 300.000. Í fyrsta lagi - ef það verður svona tæpt á mununum, þá hljóta að vera haldnar aðrar kosningar eftir meiri fræðslu/áróður. Annars fyndist mér bara að þingið ætti að útkljá þetta þegar þjóðin er svo klofin.

Nei, þetta eru nú bara léttar pælingar sem skipta minna máli. Annars vil ég fara í tvöfalda atkvæðagreiðslu. Fyrri má vera eins óbindandi og vera vill. En í seinni myndi ég vilja hafa smá bindi-vægi. Bottom-line var bara að fólk horfir oft bara á annaðhvort-eða og rífst svo um það. Í fjöööldamörgum tilfellum innan eðlisfræðinnar er raunin sú að há- eða lággildi (t.d. ávöxtunar eða skulda) er að finna milli tveggja endapunkta, og vandamálið snýst gríðarlega oft um að finna hvar útgildið liggur.

Flokkar: "Greinar", Nöldur
Rotið þann 2009-07-13 kl. 21:17:26 af þeim sem heitir Tómas Árni
2009-06-30

Á forsíðu morgunblaðsins í dag (þriðjudaginn 30. júní) gefur að líta fyrirsögn fyrir heilsíðugrein á bls. 12. Fyrirsögnin er þessu:

Fjórfalt meiri umferð og margfalt meiri slysatíðni
Í samhenginu mætti ætla að "margfalt" þýddi hér tífalt eða álíka. Í það minnsta ekki minna en fjórfalt. Raunin er reyndar sú að slysatíðnin er tvöföld. Verið er að tala um samanburð á kafla Suðurlandsvegar og þeim vegspotta sem Vaðlaheiðagöng eiga að taka við af - sem ég mun kalla Norðurlandsveg í þessari færslu. Gögnin sem ég nota eru úr Morgunblaðinu og eiga við um mælingar síðustu 5 ár.

Í greininni stendur: "Samkvæmt tölum sem Umferðarstofa tók saman fyrir Morgunblaðið ...", og síðar er aftur talað um fjórfalda umferð og margfalda slysatíðni. Það má þá draga þá ályktun að Morgunblaðið hafi kallað "tvöfalt" "margfalt".

Sumir myndu kannski kalla þetta smáatriði - en þetta er nefninlega lykilatriði! Tölurnar sem við ættum að vera að skoða eru nefninlega frekar "slysatíðni á fjölda einstaklinga". Þannig fær Norðurlandsvegur tvöfalt vægi á við Suðurlandsveginn!

Einnig mætti deila upp í vegalengd umræddra vegakafla til þess að fá enn annað hættumat. Eftirfarandi tafla sýnir þannig alla útreikninga:
Suðurlandsvegur Norðurlandsvegur
Slys á mönnum (gróft mat) 43 22
Meðalumferð á dag 6.998 1.780
Vegalengd 10,48 km 26.04 km
Slys á mann 0.00614 0.0124
Slys á mann á km 0.000586 0.000475

Þannig reiknast mér (og ég er með EINA háskólagráðu!) að vegirnir séu í hæsta lagi jafn hættulegir, sé miðað við "slys á mann á km". Reyndar vantar _alla_ óvissureikninga. Ef meiri upplýsingar væru gefnar mætti reikna út hversu líkir vegirnir eru í prósentum. En það er önnur ella. Tölfræði er nánast undantekningalaust illa fram sett í öllum fjölmiðlum.

Það er svo allt annað mál hvort þetta eitt réttlæti að velja Suðurlandsvegsframkvæmdir fram yfir Vaðlaheiðagöng í tíma. Til þess þarf að bera saman kostnað og margt fleira sem ég hef ekki hugmynd um. Ein rök fyrir Suðurlandsveginn væru að hann þjónar fleira fólki. En þá má spyrja sig hvort ekki væri verið að mismuna fólki. Hvers vegna ættu þessar 1.780 sálir sem fara daglega um Norðurlandsveginn ekki að fá bættar samgöngur ef þeirra vegur er alveg jafn lélegur og sá fyrir sunnan (Fríkirkjuna).

En að greinin hafi þessar upplýsingar að meginforsendu er fáránlegt. Sér í lagi að "margfalt" sé það sama og "tvöfalt". Illa farið með tölfræði!

Svo talar maður ekki um "meiri tíðni", heldur "hærri tíðni". Fávitar.

Flokkar: "Greinar", Nöldur
Rotið þann 2009-06-30 kl. 18:40:11 af þeim sem heitir Tómas Árni
2009-04-25

Úr málgagni framhaldsskóla sem ég man ekki hvað heitir, ritað af Víði Smára Petersen:

[...] koma bankakerfinu í gang, sem er lamað í dag undir forystu núverandi fjármálaráðherra [...]

Nú veit ég ekkert um drenginn (sýndist hann vera hægrimaður af greininni), en ég skil ekki hvað hann er að væla um núverandi fjármálaráðherra. Vill drengurinn kannski fá Árna aftur, sem virtist hlaupa undan skyldu sinni, og virtist á barmi taugaáfalls þegar búsáhaldabyltingin stóð sem hæst yfir.

Það er eins og sumir séu bara alveg blindir á raunveruleg vandamál í þjóðfélaginu. Það er ekkert að fara að lagast á undraverðan hátt ef sjálfstæðisflokkurinn kemst aftur í ríkisstjórn. En málið er nefninlega það, að það er heldur ekkert að fara að gerast þótt Samfylkingin eða Vinstri Grænir komast í ríkisstjórn. Það er nákvæmlega engin töfralausn til.

Það er hinsvegar skylda okkar að refsa þeim sem stóðu ekki sína vakt og banna þeim að komast til valda aftur. Sjálfsstæðismenn og fylgismenn eru ekki slæmt fólk. Það virðist bara vera sem annað hvort skorti helstu leiðtoga flokksins kjark til standa upp í hárinu á útrásarvíkingunum, eða þeir séu með í braskinu. Hvort heldur sem er, þá eru þeir ekki hæfir til þess að halda starfinu.

Ef fokking sjálfstæðisflokkurinn kemst í ríkisstjórn, þá missi ég alla trú á þeirri prósentu íslendinga sem kýs hann yfir sig...

Þetta er bara spurning um að kjósa rétt!

Flokkar: Nöldur
Rotið þann 2009-04-25 kl. 12:00:40 af þeim sem heitir Tómas Árni
2009-03-31

... er án efa ein ömurlegasta, ómerkilegasta og kjánalegasta íslenska vefsíða sem ég þekki. Þess vegna er svo sorglegt hve margir eyða tugum mínútna á þessari ruglsíðu daglega.

Ég skal reyndar viðurkenna að ég þekki hana nú ekki of vel. Hef t.d. aldrei lesið frétt úr einhverjum alvöru-fréttaflokk þaðan. Einungis hef ég rekist á (fengið sent url gegnum MSN eða á einhvern annan hátt farið þarna inn) fréttir sem tengjast hlutum úr flokkinum "Lífið".

Það er alveg fáránlegt hvaða fréttir komast þar inn. Til dæmis skal ég skrifa upp listann yfir mest lesnar fréttir á þessari stundu:

  1. IDOLkeppandi svarar dómaradrullu - myndband
  2. Aniston sár og Mayer þefar af nærbuxum - myndir
  3. Eins og snýtt úr nös Moore - myndir
  4. Afturendi Kirstie Alley - myndir
  5. Fársjúkur IDOL-stuðningshópur - myndband
  6. Kærasti Jóhönnu safnar fyrir farseðli til Moskvu

Þetta eru dæmigerðar fyrirsagnir af þessum vef. Þær snúast m.ö.o. einungis um afturenda frægs fólks, sjúkleg veikindi þeirra, eða lítilvæg vandamál þeirra.

Æsifréttamennskan er vitanlega í fyrirrúmi og fréttaskriftir snúast minnst um heilindi og vitsmuni en mest um sölumennsku. Fyndið að sjá hvernig þeir reyna að selja með því að setja " - myndir" eða " - myndband" fyrir aftan titil fréttarinnar.

Fréttirnar eru líka svo innihaldslausar. T.d. fréttin "Eins og snýtt úr nös Moore" inniheldur t.a.m. eftirfarandi texta:

Á meðfylgjandi myndum má sjá leikkonuna Julianne Moore, 49 ára, ásamt eiginmanni hennar, Bart Freundlich.

Með þeim eru börnin þeirra Caleb Freundlich, 11 ára, og Liv Freundlich, 7 ára.

Liv er eins og snýtt úr nös mömmu sinnar eins og sést í myndasafninu.

Ætlar nú einhver að fara að segja mér að þetta sé "frétt". Þetta er meira eins og twitterfærsla, eða bloggfærsla.

Ég vil nú helst eyða sem minnstum tíma í þennan blessaða miðil. En ég varð nú samt að skrifa pínulítið um þetta. Vona ég þurfi ekki að eyða meiri tíma í Vísi. Óttast samt að hann eigi eftir að taka svona klukkutíma af lífi mínu í viðbót í gagnslaust rugl með árunum. En ég verð bara að lifa við það og vona hið besta.

Verst er kannski að það er eins og þetta eigi að verða standardinn. mbl.is hefur einnig stöðugt verið að lækka standardinn undanfarin ár.

Ég er handviss um að við eigum eftir að þurfa að borga fyrir stafræn gæði í framtíðinni (náinni jafnvel). Þ.e. borga til að losna við auglýsingar, ruslpóst, og rusl-vefsíður. Þróunin er þegar hafin, sbr. vírusvara, póstsíur, og netsíur (svosem Netvari símans er ver þig gegn óæskilegum síðum). En þetta væri nú efni í annað nöldur á öðrum degi.

Flokkar: Nöldur
Rotið þann 2009-03-31 kl. 08:36:03 af þeim sem heitir Tómas Árni
2009-03-14

Ég kalla nú ekki allt ömmu mína. Og ég hef ekkert út á skemmtistaði né djamm að setja (jah.. reyndar er djammmenning almennt frekar ömurleg - amk. hin íslenska).

Hins vegar obýður mér sá hávaði sem kemur af staðnum 22 sem nýverið var verið að gera upp. Nú er þar einhver ömurleg ný hljómsveit að spila - skítsama hvort hún á að vera eitthvað inn eða kúl - tónlistin er sirka jafn vita ómerkileg og Bic-penni að mínu viti. Ég gæti svosem sætt mig við þetta er þeir væru ágætlega hljóðeinangraðir - sem þeir virðast ekki vera.

Þar ofaná! þá fór ég út, af því mér fannst hávaðinn yfirgengilegur (gæti ekki horft á sjónvarp eða lesið bók án þess að vera með hljóðeinangrandi efni í eyrunum) og sá að þeir voru með dyrnar opnar (dyrnar sem snúa út að horni Laugarvegs og Klapparstígs. Ég fór rakleitt að dyraverðinum og bað hann um að loka dyrunum vegna hljóðmengunar. Hann sagði að það væri ekki að fara að gerast. Ég sagðist þá hringja í lögregluna, sem eg og gerði. Fékk þar samband við mann sem hafði lítinn sem engan áhuga á þessu. Spurði hann hvort einhver færi á staðinn, en hann hélt ekki.

Spurning um að gera þetta þannig að markmiði mínu að gera út af við þennan stað láti hann ekki af þessum fjandans ólátum sem fyrst. Sýnist lögreglan amk, ekki ætla að gera neitt í málinu.

Verst fannst mér skeytingaleysi dyravarðar. Hann fær mínusstig í kladdann hjá mér.

Flokkar: Nöldur
Rotið þann 2009-03-14 kl. 00:50:52 af þeim sem heitir Tómas Árni
2009-03-11
http://mbl.is/mm/frettir/taekni/2009/03/11/apple_kynnir_oflugri_en_minni_ipod_shuffle/

Krítíkin viðkemur svo tækinu sjálfu, nýja iPod Shuffle. Í fyrsta lagi vil ég byrja á að nöldra aðeins meira yfir þessari frétt (sem eflaust er beinþýdd af e-rri tækninýjungasíðunni). "... minni en öflugri ...". Hvað á þetta "en" að þýða þarna?. Svo er það er ekki einn hnappur sem maður notar til að stjórna. "power"-hnappurinn hefur 3 stillingar: off, shuffle, album-shuffle, heyrnatólin hafa svo einn langan hnapp sem er í raun 3 hnappar. Þannig eru samtals (fyrir þá sem kunna að reikna) 4 hnappar. Reyndar er ekki minnst á að það sé einn hnappur til að stjórna shuffle dæminu.. Svo þetta eru amk 3 hnappar.

Með því að smella hér má sjá smá kynningu á því sem iPodinn getur gert. Þar má strax sjá fáeina fáránlega hluti. Amk. hluti sem gera það að verkum að mér dytti aldrei mögulega í huga að kaupa þetta "tækniundur" fyrir 9000 kr. Kannski 1000 kr.

  • Aðalstjórntækin eru í heyrnartólunum. "Ahh, já - ég hendi þá bara Sennheizer heyrartólunum"...right.
  • Mismunandi rödd eftir því hvort þú syncar við Mac eða Windows tölvu. Hvaða fjandans máli skiptir það???
  • Hví annars að fækka hnöppum niður í einn? Við höfum, jú, fimm fingur. Ég treysti mér ágætlega til þess að nota - allt af því 3 í einu (ég veit.. ég veit, takk takk...)

Æj... veit nú ekki hvað nákvæmlega annað böggar mig. Þetta er bara kjánalegt tæki.

Mussi mussi mu... Nöldur nöldur...

Flokkar: Nöldur, n0rd
Rotið þann 2009-03-11 kl. 23:39:56 af þeim sem heitir Tómas Árni
2009-02-25

Fékk eitthvað komment á síðustu færslu er við kom fjölda og tegunda athugasemdara (þeir sem skrifa athugasemdir).

Iss piss, segi ég nú bara. Það er nefninlega einmitt ekki tilfellið að ég sé að há einhverja baráttu um vinsældir. Fjarri því, þá er vefill þessi ætlaður fáeinum nánum aðilum sem gætu haft gaman að því að heyra við hvað ég er að fást (þýs. Faust).

Það er reyndar talsvert um það í dag, að allir verði að vera inn, á einhvern hátt. Allir verði að eiga blogg sem vert væri að lesa, skemmtilegan Facebook prófíl, nú eða spila í einhverri hálf-leiðinlegri popphljómsveit. Ég veit ekki með ykkur, en ég sé litla von fyrir Björtustu Vonina frá Ísl. Tónlistarverðlaununum. Ekki að þeir séu lélegir. Þeir eru bara ekki góðir. Satt best að segja, þá finnst mér skemmtilegra að hlusta á hamarshögg. En jæja.. þessi færsla átti nú ekki að snúast um hinn lélega poppkúltúr á íslandi. Hvaða vit er nú annars í að hafa rosa tónlistarverðlaun í mörgum flokkum fyrir land sem er svo lítið sem okkar? Þar sem tilnefndir eru 5 af kannski, hvað, 5 sem mögulega koma til greina yfirhöfuð? Þar með getur varla talist merkilegt að fá tilnefningu þar sem samkeppnin er engin. OK, vá.. ég er virkilega bara farinn að nöldra um tónlist hérna...

Reyndar skrifa ég öðru hverju hér inn um einhver málefni er skipta mig einhverju máli - sbr. hringtorga- eða pizzufærslan. Þá myndi ég vitanlega vilja koma minni skoðun á framfæri hjá alþjóð og helst víðar. En, tjah, það má þá alveg spyrja sig hvort vefillinn sé rétt form til að reyna að breyta heiminum. Sumir reyna að nota blogg til þess. (Ég er btw. að að gera greinarmun á bloggi og vefli).

Ef maður vill breyta einhverju í heiminum - heldur fólk virkilega að ein besta leiðin sé að skrifa um það stutta (eða langa) færslu á persónulega vefdagbók? Ég held nú ekki. Best væri líkast til að fara í stærri fjölmiðla, senda bréf (eða tölvupóts) á viðeigandi aðila, eða fara á stjá í eigin persónu (í hvers perónu á maður annars að fara?) og ræða málin feis tú feis.

Well.. ég ætlaði nú ekkert að vera að nöldra. Athugasemdin - sem kom frá Tinnu Ó. - var vitanlega meira og minna í léttu glensi fram sett (eins gott Tinna, annars verð ég bjálau). Mest megnis er ég bara eitthvað að hanga hérna, af því ég nenni ekki að fara inn í rúm. Reyndar bíður þar mín ein skemmtileg sem ég ætla að eyða síðustu mínútum kvöldsins með. Það gæti nú orðið skemmtilegt.



Sú sem bíður er nefninlega bók og er eftir A.C.Doyle nokkurn...

Flokkar: Daglegt amstur, Flipp, Almennt, "Greinar", Nöldur
Rotið þann 2009-02-25 kl. 00:36:08 af þeim sem heitir Tómas Árni
2008-11-20
Sjá frétt

Spurning hvort Microsoft sé að reyna að tryggja sér markaðshlutdeild eða í raun einungis að veita íslendingum styrk ("There is no such thing as a free lunch"...). Svo er spurning hvort þetta mndi ekki kallast brot á samkeppnislögum.

Einhver moggabloggarinn sagði að tilgangurinn væri ekki að tryggja sér markaðshlutdeild - meina - hvað gerir það til þótt þeir missi 300.000 manna land frá sér.

EN

Þá má allt eins segja á móti: Það sem þetta er svona lítil þjóð, þá getum við gefið þeim góðan afslátt og tryggt okkur ráðandi markaðshlutdeild.

Ekki að ég vilji vera með nein leiðindi - en sér fólk ekki hvað þeir eru virkilega að kaupa sig inn á fólk? Maður getur ekki mögulega fengið tölvu ÁN þess að þurfa þess að kaupa stýrikerfið mieð. Þetta gildir vitanlega einnig um Apple. Þ.e. búið er að smyrja ofan á tölvuna einhverjum tíuþúsundköllum á tölvuna bara fyrir stýrikerfið. Svolítið eins og ef bíll væri seldur og myndi bara virka með Essó (N1) (bara svolítið - ekki alveg...).

Nei. Ég trúi því seint að gróðafyrirtæki (líkt og Microsoft) fari að "styrkja" heilu löndin með því að gefa afslátt á vöru sína (sem kostar nánast ekkert í afritun btw.). Hins vegar sé ég ekkert að því. Ef ég væri að reka gróðafyrirtæki myndi ég eflaust gefa svona afslátt. En það er kjánalegt að líta á þetta sem einhverskonar "good-will".

Flokkar: Almennt, Nöldur
Rotið þann 2008-11-20 kl. 10:52:45 af þeim sem heitir Tómas Árni
2008-07-23
Þoli ekki að microsoft sé alltaf með eigin útgáfu af HTML. Fyrir ykkur sem eruð að nota Internet Explorer, þá er þessi síða líklega ekki miðjusett, eða hvað..? Anyway - ég er meira pirraður út í M$ þegar ég sé að þeir eru með eigin útgáfu af XPath og í raun XML, sem þeir kalla MSXML. Fyrir þá sem ekki þekkja, þá er XML ótrúlega þægileg aðferð til að geyma gögn, og XPath er eins konar tungumál til að lesa úr XML skjölunum. Þá þurfa M$ endilega að hafa sína eigin útgáfu af þessu og styðja ekki sumar hefðbundnar XPath skipanir. Alveg ótrúlegt.
Flokkar: Nöldur
Rotið þann 2008-07-23 kl. 18:38:48 af þeim sem heitir Tómas Árni